30. janúar 2008 klukkan 12:56
JEEEEEESSSSSSS.... komin undir 85 kílóin :) :) :)
Vigtun í morgun og ég missti 1 kg. í þessari viku og eru þá samtals 5,5 kg. farin síðan 2.janúar.
Ég er orðin 84,5kg. :) Sko þetta fer allt að koma hjá mér!
Veit ekki hvernig þessi vika verður, er að fara á árshátíð á laugardaginn og ætla ég að leyfa mér að slaka á í átakinu rétt um helgina.
Ætla að fá mér fullt af áfengi ;) og svo ætlar Inga vinkona að baka handa mér bestu skúffuköku ever þar sem ég á afmæli á mánudaginn :)
Er að hugsa um að hafa þetta bara sem 5kg. verðlaunin mín, bjór, skúffukaka og góður árshátíðarmatur.
jæja ætla að halda áfram að vinna...
Kveðja Jóna sem fer sífellt minnkandi.
Jóna
23. janúar 2008 klukkan 08:01
jæja ég steig á vigtina áðan, komin niður í 85,4 kg. Missti 400gr. í þessari viku. Eins og ég sagði síðast þá bjóst ég nú við meiru þar sem eina svindlið í þessari viku var pizzan á föstudaginn. En svo lengi sem vigtin fer eithvað niður í hverri viku er ég ánægð. Góðir hlutir gerast hægt!
Dóttir mín er öll að koma til eftir gubbupestina, er reyndar búin að vera með hita síðan á mánudaginn og svo gubbaði hún einu sinni í gær. En ég held að hún sé alveg hitalaus í dag, svo hún ætt að komast í leikskólann á morgun vonandi.
Ég er loksins búin að horfa á fyrstu seríuna af dexter, sem ég ætlaði reyndar að horfa á í veikindafríinu um daginn. Djö.... eru þetta góðir, nú bíður maður bara spenntur eftir þætti nr. 2 í seríu 2 sem er verið að sýna á skjá einum.
Jæja ég bið að heilsa í bili...
kveðja Jóna mjóna
Jóna
21. janúar 2008 klukkan 13:08
Það er óhætt að segja það að mánudagar séu til mæðu. Í gærkvöldi vaknaði litla snúllan mín upp hágrátandi og öll út ötuð í ælu...Já hún fékk ælupest blessunin. Hún ældi frá 10 í gærkvöldi til kl. 4 í nótt.
Jæja ég náði þó 3,5 klst. svefn eftir að hafa sett í 2 þvottavélar! Nú er ég bara drulluþreytt og hlakka til að komast heim til að knúsa litlu snúlluna mína.
Átakið gengur vel... svindlaði bara einu sinni um helgina, fékk mér dominos pizzu á föstudaginn. Steig á vigtina í morgun og ég verð nú að segja að bjóst við aðeins betri árangri þessa vikuna, þar sem eina svindlið mitt er þessi bévítans Pizza!
En kannski er þetta bara einhver dagamismunur, kemur betur í ljós á miðvikudaginn :)
Ég er allavega sátt svo lengi sem ég fer eitthvað aðeins niður í hverri viku.
Skelli inn tölum á miðvikudaginn...
Kveðja Jóna Mjóna
Jóna
16. janúar 2008 klukkan 17:10
hæ hæ, rosalega gengur vel hjá mér núna!! Ég steig á vigtina í morgun og viti menn... ég léttist um 1 kg. þrátt fyrir að hafa legið í rúminu alla vikuna. Þá er ég samtals búin að missa 4,1 kg.
En ég var rosa dugleg að passa upp á það hvað ég borðaði og eins forðaðist ég sykurinn eins og ég gat.
Svindlaði 3x í vikunni... á föstudaginn fékk ég mér berneis sósu með kjötinu, á sunnudaginn fékk ég mér eina súkulaðiskel frá nóa siríus og svo í gær fékk ég mér eina bananasprengju frá nóa siríus. Það var það eina sem ég svindlaði og er ég virkilega stolt af mér. Maður verður nú að leifa sér eitthvað smá stundum.
Ég ætla að verðlauna mig aðeins í kvöld og fá mér popp :)
Svo þarf ég að finna einhver verðlaun handa mér þegar 5 kg. eru farin. Vonandi verður það nú í næstu viku. Endilega komið með uppástungur fyrir 5kg. verðlaunin :)
Kveðja Jóna mjóna
Jóna
13. janúar 2008 klukkan 15:42
Ojjjjj síðustu 4 dagar hafa verið einir af mínum verstu dögum held ég bara svei mér þá. Fór í aðgerðina á fimmtudaginn, fyrir þá sem ekki vita var verið að gera aðgerð á nefinu mínu, rétta miðnesið því það var svo skakkt. Ég mátti ekki fá smá kvef hérna áður án þess að fá stíflaðar kynn og ennisholur vegna þess hve "nefgöngin" voru svo þröng. En allavega, læknirinn sagði að hann hafi getað víkkað þau töluvert og ætti ég eftir að finna mikinn mun á mér sem er bara frábært.
Aðgerðin gekk mjög vel fyrir utan eitt atriði. það komst einhver hreinsivökvi í vinstra augað á mér svo ég er búin að vera að drepast úr verkjum í auganu og ekkert getað séð neitt með því. og svo auðvitað er andlitið á mér mjög bólgið eftir þetta allt saman en maður mátti svo sem búast við því.
Ég sem ætlaði að hafa það svo rosa gott í veikindafríinu mínu, búin að redda mér fullt af góðum þáttum sem ég hef ekki séð áður í sjónvarpinu t.d. fyrstu seríuna af house og dexter en svo gat ég bara ekki horft á neitt af þessu :(
Jæja átakið gengur allavega rosalega vel. Svaf bara allan fimmtudaginn og föstudaginn og borðaði næstum ekkert vegna lysarleysis. En svo í gær og og í dag hef ég alveg borðað hollan og góðan mat og ekkert nammi og ekkert sykurgos :) Ég er ekkert smá stollt af mér!
Nú hlakka ég bara til að fara í vigtun á miðvikudaginn.
En þangað til segi ég bæjó
kveðja Jóna
P.s. endilega verið dugleg að kommenta hjá mér, það hvetur mann svo áfram. Líka þið sem ég þekki ekki :)
Jóna
09. janúar 2008 klukkan 09:29
Yesssssss..... Búin að missa 3,1 kg. í fyrstu vikunni :) Er komin niður í 86,8 kg.
Blogga meira seinna, þarf að fara að vinna.
Kveðja Jóna aðeins minni fitubolla
Jóna
06. janúar 2008 klukkan 14:50
Jæja þá er ég komin aftur í átak eftir jólafríið. Ég leifði mér ALLT um jólin og náði að þyngjast um 3 kg. hvorki meira né minna!!!!!
Ótrúlegt hvað þetta kemur fljótt aftur ef maður slakar á.
Ok...ég byrjaði aftur í átaki á miðvikudaginn síðasta og var ég 89,9 kg. :(
Það sem komið er af vikunni hefur gengið rosalega vel og hlakka ég geðveikt til að stíga á vigtina á miðvikudaginn.
Svo fer ég í nefaðgerðina á fimmtudaginn, en ætla samt að standa mig í prógraminu, alveg ákveðin í því!!!!
Bless í bili,,,kem svo með tölur á miðvikudaginn.
Kveðja Jóna feitabolla
Jóna