Dagur 51
13. nóvember 2007 klukkan 10:32
Dísess... Held ég fari að hætta að telja þetta blessaða átak í dögum!!! Hljómar eitthvað svo mikið...dagur 51 og aðeins 4 kg. farin :( Já ég stóð í stað þessa vikuna, þyngdist reyndar um 200 gr. í síðustu viku og er því enn 85,2 kg.
Já er að pæla í að fara að telja þetta í vikum! Ætli það hljómi ekki betur? 4 kg. á 7 vikum... Hvað finnst ykkur?
Jæja ég ætla nú að reyna að taka mig betur framvegis.. verð að fara að drulla mér í ræktina líka, er komin með svo mikla vöðvabólgu að ég er að drepast... Hreyfingin bætir allt!! Ætla líka að skella mér í sund bráðlega, svona þegar kvefið er farið. Já ég er búin að vera að drepast úr kvefi undanfarið, endaði með því að ég fór á læknavaktina á föstudaginn og bað um pensilín því kinn og ennisholurnar stíflast alltaf svo hjá mér þegar ég kvefast. Svo pantaði ég mér tíma hjá háls- nef og eyrnalækninum og fékk tíma eftir 2 vikur. Hann ætlar líklegast að senda mig í aðgerð og láta laga miðnesið og vonandi hreynsa út úr kinnholunum svo þetta helv... hætti að koma.
Jæja bið að heilsa... set vonandi inn skemmtilegri færslu næst;)
kveðja Jóna mjóna með stíflað andlit!

Jóna
2 athugasemdir
2 athugasemdir