Atburðarteljari

Auglýsing

Könnun

Er markmiðið mitt...

Vikuleg vigtun

Átaksbloggarar

Bloggarar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Markmið fyrir sumarið

14. mars 2009 klukkan 13:28
Jæja ætlar enginn að koma með hugmyndir af markmiði fyrir mig?

Best ég geri þetta þá bara sjálf hehe. Vil ekki hafa of hátt markmið og ekki of lágt.

Hvernig lýst ykkur á að ég reyni að missa 3,5 - 4 kg. fyrir 1.júní.

Sendi könnun með.

Kveðja Jóna

Vigtun 10

12. mars 2009 klukkan 20:54

Jæja loksins hef ég smá tíma til að skrifa hérna inn. Síðasta vika gekk rosa vel en ég er nú samt ekki ánægð með útkomuna. Missti 200gr. í þessari viku. Þá eru komin 4,2 í heildina. Ég borðaði ekkert nammi, fékk mér reyndar nokkrum sinnum popp og drakk ekkert gos. Venjulegur heimilismatur á kvöldin en aðeins of mikið brauð kannski á daginn. Hélt samt að ég hefði misst meira bara vegna þess að ég borðaði ekkert nammi og drakk ekkert gos. En svona er þetta bara stundum, greinilegt að brennslan er eitthvað hæg hjá mér þessa dagana þar sem ég hef ekki verið nógu dugleg að hreyfa mig. Stefni á að fara allavega 3x í góðan göngutúr í þessari viku.

Spurning um að setja sér eitthvað raunhæft markmið fyrir sumarið. Endilega komið með hugmynd af raunhæfu markmiði fyrir mig fyrir 1. júní. Það eru rúmar 11 vikur :) Hafið það í huga að ég er ekki að gera neinar róttækar breytingar hjá mér, er ekki á neinum kúr, og er ekki í ræktinni. Þetta er bara mataræðið sem ég er að reyna að laga og nokkrir röskir göngutúrar á viku, spurning hvort ég fari ekki að bæta inn æfingum heima td. magaæfingum, hnébeygjum og þess háttar.

Kveðja Jóna

Jóna
1 athugasemd

Vigtun 9

03. mars 2009 klukkan 15:10
jæja vikan gekk bara nokkuð vel. Fór 3x í góðan göngutúr og náði að passa mig vel í mataræðinu í vikunni en klikkaði aðeins um helgina. Það fóru 500gr. og er ég bara nokkuð sátt við það, enda er markmiðið mitt að missa 0,5 - 1 kg. á viku.

Ég verð samt að passa betur upp á mataræðið ef ég ætla að ná amk. 500g. í hverri viku. Ég er búin að vera soldið að klikka á súkkulaði sérstaklega og svo fékk ég mér pizzu á föstudagskvöldið.

Jæja bið að heilsa í bili.

Kv. Jóna
Jóna
1 athugasemd

Vigtun 8

24. febrúar 2009 klukkan 10:05

Voðalega ætla ég að vera lengi að koma mér í almennilegan átaksgír! Þarf virkilega að fara að hreyfa mig meira og laga mataræðið hjá mér. Maður er eitthvað voða latur þegar maður hangir svona heima. Sölvi er búinn að vera svo kvefaður að ég hef ekkert viljað fara mikið út í göngutúra með hann svo ég þarf bara að vera dugleg að fara út á kvöldin þegar hann er sofnaður. Það ætti nú ekki að vera mikið mál þar sem hann sofnar um kl. 21 og sefur nánast alla nóttina, vaknar stundum 1x til að drekka, rosa góður strákur sem ég á ;)

Jæja það fóru nú samt 300gr. af mér í þessari viku, ég bjóst reyndar ekki við því, hélt frekar að ég hefði farið upp á við. Þá er ég orðin 94,8kg. Nú er bara að fara að hætta að tala um að breyta hinu og þessu, nú er kominn tími á það að fara að framkvæma.

Byrja í kvöld, ætla út að labba í kvöld þegar börnin eru sofnuð :)

Bless í bili :)

Kv. Jóna

Vigtun 7.

17. febrúar 2009 klukkan 21:25
Jæja þá er 6. vikan búin og gekk hún ekki eins vel og ég vonaðist eftir. Ég stóð í stað :(

Þarf greinilega að huga betur að mataræðinu og hreyfa mig meira líka.

Vona að næsta vika verði betri!!

kv. Jóna

Vigtun 6

10. febrúar 2009 klukkan 16:47
Hæ hæ, mér sýnist þetta átak verða eins og síðast. Léttist mikið aðra vikuna og svo minna hina vikuna. Ég missti ekki nema 200gr. þessa vikuna þrátt fyrir flott mataræði. Nú er ég orðin 95,1kg. og 3,2kg. farin síðan ég byrjaði í átakinu.

Ætla að setja nýtt markmið fyrir þessa viku... 800gr. ég væri sátt við það.

Kv. Jóna

Vigtun 5

03. febrúar 2009 klukkan 13:24
Jesss ég stóðst markmiðið mitt... missti 1,1 kg. í þessari viku :) Verð að viðurkenna að þessi sem sagði NEI í könnuninni átti stóran þátt í því að ég náði þessu kílói af mér hehe. Jú og svo auðvitað höfðuð þið sem sögðuð já mikil áhrif líka... ekki vill ég bregðast ykkur!!

Ég hef ekkert farið í ræktina í vikunni, passaði bara upp á mataræðið, hefði samt mátt passa betur upp á það um helgina.

Svo á ég afmæli á morgun og ætla ég að leyfa mér köku þá. Ætla að baka sjúklega góða marenge köku, úúúú ég get ekki beðið!!!

Ég ætla að láta reyna á það að missa aftur 1 kg. í þessari viku. Síðast þegar ég var á danska náði ég yfirleitt 1 kg. aðra vikuna en svo bara 300-500 gr. hina vikuna en ég ætla að ath. hvernig þetta tekst núna.

Set aftur könnun fyrir þessa vikuna...

Kveðja Jóna,

P.s. Takk fyrir stuðninginn, væri samt til í að sjá fleiri comment frá ykkur;)

Vigtun 4

27. janúar 2009 klukkan 15:31
Jæja þá er fjórða vigtunin búin og ég stóð í stað. Hef ekkert farið í ræktina að sökum veikinda hjá bæði mér og Sunnevu. Svefninn hjá Sölva er aðeins að lagast og er hann farinn að sofna núna kl. 2 í stað 5 á næturnar. Ég stefni á það að byrja á danska á mánudaginn í næstu viku ef hann heldur áfram að vera svona duglegur að sofna. Ætla reyndar að halda áfram að vinna í því að færa svefninn aðeins framar þannig að hann verði farinn að sofa svona um miðnætti, það er ágætis tími.

Ég bíð bara spennt eftir að byrja á danska. Nú er Inga vinkona byrjuð aftur og gengur henni mjög vel og ætlum við að veita hvorri annarri stuðning. Vera einskonar sponsorar fyrir hvora aðra. Hringja reglulega í hvor aðra til að hvetja áfram og fylgjast með hvorri annarri.
´
Jæja ég ætla mér stórt í þessari viku... 1 kg. skal fara af!! Haldið þið að ég geti það? Læt inn skoðanakönnun með að gamni :)

Kv. Jóna

vigtun 3

21. janúar 2009 klukkan 11:36
Hæhæ, ég hafði ekki tíma til að skrifa í gær en ég vigtaði mig og missti ég 500gr. þessa vikuna og er orðin 96,4 kg. Ég er búin að vera veik nánast alla vikuna og fór ég því bara 2x í ræktina aftur. Hef ekkert farið í þessari viku vegna veikindanna. Ætlaði til læknis í morgun en náði að sofa yfir mig!! Ætli ég skelli mér ekki bara á vaktina í kvöld.

Mataræðið er enn ekki nógu gott hjá mér. Sölvi er ennþá alltaf vakandi á nóttunni og sækist ég þá mikið í eitthvað orkuríkt að borða. Vona bara að hann fari að hætta þessu næturstandi svo ég geti byrjað að taka mataræðið í gegn aftur.

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili..

Kv. Jóna

Vigtun 2.

13. janúar 2009 klukkan 15:29

hæhæ, jæja þá er fyrsta vikan í átakinu liðin og gekk hún bara alveg ágætlega. Fór reyndar bara 2x í rætina og passaði ekki nógu vel upp á mataræðið. Við vorum með matarboð á miðvikudaginn og þá var borðað vel og svo ís í eftirrétt. Svo skírðum við strákinn okkar á Sunnudaginn og þá fékk ég mér kökur og meira gotterí. Svo er Sölvi (strákurinn minn) ennþá alltaf vakandi á nóttinni og sofandi á daginn svo matartímarnir mínir eru eitthvað í rugli á meðan á þessu stendur. Er voða svöng á kvöldin og á nóttunni sæki ég þá helst í brauð, kex og þess háttar.. vantar greinilega einhverja orku. En ég vona nú að þetta fari að lagast og hann fari að sofa á eðlilegum tíma.
Ég ætla að fara 4x í ræktina í þessari viku fyrst ég komst bara 2x í síðustu viku. Eins ætla ég í bónus á morgun og kaupa mér eitthvað af ávöxtum og grænmeti til að narta í um nóttina.
En það fóru allavega 1,4kg. af í fyrstu vikunni, enda ennþá að losa mig við meðgönguþyngdina, svo byrja aðal átökin þegar þau kg. eru farin!

Já, best að geta þess að ég kem til með að blogga bara á vigtunardögunum mínum sem eru þriðjudagar. En ef tími gefst læt ég kannski eitthvað heyra í mér á milli, en það er nú sjaldan núna á meðan Sölvi sefur svona óreglulega.

Jæja, ég bið að heilsa í bili,

Kv. Jóna

Ps. setti inn fyrstu myndirnar, set svo inn myndir aftur eftir mánuð

Jóna
1 athugasemd